Keflavík og Njarðvík komin áfram í bikarkeppni drengjaflokks
Í gærkvöldi fóru fram þrír leikir í bikarkeppni drengjaflokks í körfubolta þar sem Skallagrímur, Keflavík og Njarðvík komust áfram í keppninni. Einn leikur er eftir í 8-liða úrslitum en það er viðureign KR og Fjölnis sem fram fer á laugardag.
Keflavík 122-44 Haukar
Hafnfirðingar fengu skell í Toyota-höllinni í gærkvöldi. Keflvíkingar eru því komnir áfram í bikarkeppninni eftir stóran og öruggan sigur. Þetta var einstefna frá upphafi til enda þar sem Andri Daníelsson var atkvæðamestur í liði Keflavíkur með 20 stig ásamt Sævari Frey Eyjólfssyni. Hafiliði Már Brynjarsson bætti svo við 15 stigum og Andri Þór Skúlason gerði 13. Hjá Haukum var Guðmundur Darri með 18 stig.
Njarðvík 85-74 Breiðablik
Njarðvíkingar unnu karakterssigur gegn Blikum í bikarkeppni drengjaflokks í gærkvöld í Ljónagryfjunni en þar voru lokatölur 85-74. Það voru aftur á móti gestirnir úr Kópavogi sem mættu grimmari til leiks og þeir leiddu 6-15 eftir fyrsta leikhluta og Njarðvíkingar voru akkúrat ekkert að hitta úr skotunum sínum. Til að auka á áhyggjur þeirra þá fékk Maciej Baginski sína 3ju villu í lok fyrsta leikhluta en þar fyrir utan var Jens Óskarsson ekki með Njarðvíkingum vegna veikinda og hæðin var því ekki mikil á liðinu.
Blikarnir bættu í og komust í 6-21 og 9-25 og fátt í spilunum hjá heimamönnum á meðan Snorri Hrafnkelsson var mjög atkvæðamikill hjá Blikum. Maciej kom aftur inn hjá Njarðvíkingum um miðbik annars leikhluta og þeir breyttu um varnarleik og þá fóru hlutirnir að rúlla betur. Elvar Már Friðriksson fór fremstur hjá heimamönnum á góðum kafla í lok fyrri hálfleiks og var bæði duglegur í stigaskori og í að finna samherja sína og á skömmum tíma var þetta aftur orðinn leikur og það var Jón Böðvarsson sem að átti lokaorð fyrri hálfleiks með stórum þrist um það leyti sem glumdi í bjöllunni. Staðan orðin 35-36 og stemmingin að snúast með heimamönnum.
Blikar komust í 40-42 snemma í þriðja leikhluta en þá kom kafli hjá Njarðvíkingum þar sem þeir gera 15 stig gegn 2 og staðan orðin 55-44. Oddur Birnir Pétursson fór mikinn á þessum kafla með 11 stiga Njarðvíkinga og var þar að auki að rífa niður fráköst og verja skot. Heimamenn fóru svo með 10 stiga forystu, 64-54 inn í fjórða leikhlutann.
Blikar skoruðu fyrstu 5 stig fjórða leikhluta og náðu svo að minnka muninn í 4 stig þegar sex mínútur voru eftir. Maciej Baginski tók þá sinn sprett og gerði 9 stig á stuttum tíma og réðu Blikar illa við hann og þeir Oddur og Elvar héldu einnig áfram að vera gestunum erfiðir. Vörn Njarðvíkinga efldist enn frekar og Blikar komust ekki nær og skynsamir Njarðvíkingar sigldu 11 stiga sigri í hús og tryggðu sér þar með sæti í undanúrslitum bikarkeppni drengjaflokks.
Þríeykið Elvar, Oddur og Maciej áttu allir stórgóðan leik hjá Njarðvíkingum þó þeir tveir síðastnefndu væru lengi í gang. Maciej gerði 24 stig og þeir Elvar og Oddur gerðu 21 stig hvor. Tómas Orri Grétarsson gerði 5 stig, Dagur Sturluson 5 stig, Jón Böðvarsson 5 stig, Birgir Snorri Snorrason 3 stig og Brynjar Þór Guðnason 1 stig.
Myndir/ Eyþór Sæmundsson [email protected]