Keflavík og Höttur skildu jöfn
Keflvíkingar mættu Hetti frá Egilsstöðum í æfingaleik í knattspyrnu í gærkvöldi og skildu liðin jöfn 2-2. Þeir Magnús Þorsteinsson og Patrick Redo, nýr liðsmaður Keflavíkur, gerðu mörk liðsins.
Þeir Ivica Skiljo og Kenneth Gustavsson eru komnir til landsins en léku þó ekki með í gær en það gerði hins vegar Jón Gunnar nýkominn að austan. Þess má geta að Bjarki Freyr Guðmundsson stóð í marki Hattar.