Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflavík og Haukar mætast í úrslitum
Laugardagur 31. mars 2007 kl. 21:04

Keflavík og Haukar mætast í úrslitum

Haukar tryggðu sér í dag sæti í úrslitum og mæta Keflavík en Haukar lögðu ÍS í oddaleik að Ásvöllum í dag 81-59. Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkurkvenna, sagði eftir síðasta leik Grindavíkur og Keflavíkur að Keflavík myndi leika til úrslita gegn ÍS en raunin varð önnur í dag.

 

Sigur Hauka var aldrei í hættu og því mætast Haukar og Keflavík að nýju í úrslitum en Haukar sópuðu Keflavík 3-0 inn í sumarið í fyrra og eru núverandi Íslandsmeistarar.

 

Körfuknattleiksáhangendur geta látið sér fara að hlakka til úrslitaleikjanna því bikarleikur liðanna fyrr á þessari leiktíð var sjónarspil sem gleymist seint.

 

[email protected]

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn