Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflavík og Haukar mætast í 4. sinn í kvöld
Mikið mun mæða á Arnari Frey Jónssyni í baráttunni við Kára Jónsson og Haukana í kvöld -mynd: karfan.is
Mánudagur 30. mars 2015 kl. 13:00

Keflavík og Haukar mætast í 4. sinn í kvöld

Keflvíkingar freista þess að klára seríuna á heimavelli

4. leikur í rimmu Keflavíkur og Hauka fer fram í TM höllinni í kvöld. Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir Keflavík eftir að Haukar forðuðu sér frá sópnum í síðasta leik með öruggum sigri í Hafnarfirði.

Keflvíkingar vilja án efa forðast að þurfa að fara aftur á útivöll til að klára seríuna og munu leggja mikið kapp við að ljúka ætlunarverki sínu í kvöld. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Stuðningsmenn Keflavíkur eru hvattir til að mæta snemma í kvöld og gæða sér á grilluðum hamborgurum fyrir leik og þjappa sér saman fyrir átök kvöldsins. 

Leikurinn hefst á slaginu 19:15 í TM höllinni.