Keflavík og Grindavík bæði með sigra í Pepsi-deildinni
Keflavík og Grindavík fara vel af stað í Pepsi-deild karla í knattspyrnu en deildin hófst í kvöld með fjórum leikum. Keflvíkingar fengu Stjörnumenn í heimsókn á Nettó-völlinn í Reykjanesbæ og fögnuðu góðum sigri, 4-2. Í Kórnum voru Grindvíkingar í heimsókn hjá Fylki og unnu frábæran sigur 2-3 eftir að hafa lent tveimur mörkum undir snemma í fyrri hálfleik.
Stjarnan komst yfir á 29. mínútu á Nettó-vellinum í kvöld með góðu marki frá Daníel Laxdal. Hilmar Geir Eiðsson jafnaði leikinn fyrir heimamenn nokkrum mínútum síðar í sínum fyrsta leik með Keflavík í Pepsi-deildinni en hann kom til liðsins frá Haukum í vetur.
Halldór Orri Björnsson kom gestunum yfir á 61. mínútu eftir að hafa sloppið í gegnum vörn Keflvíkinga en Guðmundur Steinarsson jafnaði metinn aðeins tveimur mínútum síðar eftir að hendi var dæmd á leikmann Stjörnunnar. Jóhann B. Guðmundsson skoraði tvö síðustu mörkin þegar skammt var eftir af leiknum en hann kom inná sem varamaður og náði svo sannarlega að stimpla sig inn í leikinn.
Það var ekki gæfuleg byrjunin hjá Grindvíkingum gegn Fylki í kvöld og eftir 27. mínútna leik var staðan orðin 2-0 fyrir heimamenn. Gylfi Einarsson skoraði fyrra markið og Ingimundur Níels Óskarsson það seinna. Fyrirliðinn Orri Freyr Hjaltalín minnkaði muninn skömmu fyrir hlé og á 53. mínútu náði Scott Ramsey að jafna metinn með skoti af stuttu færi.
Grindvíkingar voru sterkari aðilinn í seinni hálfleik og uppskáru verðskuldað sigurmark í uppbótartíma þegar Magnús Björgvinsson komst einn í gegn og afgreiddi boltann frábærlega í netið og tryggði Grindvíkingum öll þrjú stigin. Þetta er í fyrsta sinn sem liðið nær sigri í 1. umferð deildarinnar frá því að liðið komst fyrst upp í efstu deild árið 1995.
Keflavík 4 - 2 Stjarnan
0-1 Daníel Laxdal (29.)
1-1 Hilmar Geir Eiðsson (33.)
1-2 Halldór Orri Björnsson (61.)
2-2 Guðmundur Steinarsson (63. víti)
3-2 Jóhann B. Guðmundsson (80.)
4-2 Jóhann B. Guðmundsson( 86.)
Fylkir 2 - 3 Grindavík
1-0 Gylfi Einarsson (13.)
2-0 Ingimundur Níels Óskarsson (27.)
2-1 Orri Freyr Hjaltalín (43.)
2-2 Scott Ramsey (53.)
2-3 Magnús Björgvinsson ('90.)
Magnús Björgvinsson skoraði sigurmark Grindavíkur í uppbótartíma.
Grindvíkingar fögnuðu vel í leikslok.
Guðmundur Steinarsson skorar úr víti fyrir Keflavík.
Willum Þór Þórsson hafði ástæðu til að gleðast í kvöld.