Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflavík og Grindavík áfram: Njarðvík úr leik
Þriðjudagur 12. júní 2007 kl. 23:50

Keflavík og Grindavík áfram: Njarðvík úr leik

Knattspyrnulið af Suðurnesjum léku í VISA bikarkeppninni í kvöld þar sem Keflavíkurkonur og Grindavíkurkarlar tryggðu sig áfram í keppninni en Njarðvíkingar eru úr leik. Keflavík lagði Fylkiskonur í Árbænum eftir spennuþrungna vítaspyrnukeppni en Grindavík skellti ÍR 3-1 og Njarðvík lá 2-1 gegn Fjölni í Grafarvoginum.

 

Í Árbænum var staðan 1-0 Keflavík í vil í hálfleik en það var Guðný Petrína Þórðardóttir sem kom Keflavíkurkonum yfir. Fylkir jafnaði metin snemma í síðari hálfleik og þannig stóðu leikar að loknum venjulegum leiktíma. Framlengja varð leikinn þar sem hvorugu liði tókst að skora þrátt fyrir urmul færa svo bregða þurfti til vítaspyrnukeppni.

 

Bæði lið skoruðu úr fyrstu fimm vítaspyrnunum sínum en Fylkir brenndi af sjöttu spyrnunni svo það kom í hlut Donnu Cheyne að gera út um leikinn. Donna var öryggið uppmálað og skoraði örugglega úr vítaspyrnunni svo Keflavík fagnaði sigri í spennuþrungnum bikarleik.

 

„Ég er alveg búin, þetta var ótrúlegur leikur og merkilegt hvað við þurfum alltaf að fara erfiðu leiðina. Þetta var bara týpískur bikarleikur, barátta út í gegn. Við vorum arfaslakar í fyrri hálfleik en vorum sem betur fer yfir. Bæði lið áttu fín færi og áhorfendur fengu hörkuspennandi leik,” sagði Lilja Íris Gunnarsdóttir, fyrirliði Keflavíkur en hún var ein af vítaskyttum Keflavíkur sem skoraði örugglega úr sínu víti.

 

„Það er alltaf smá taugastrekkjandi að taka víti í vítaspyrnukeppni í bikarleik en ég held að ég hafi örugglega verið mest afslöppuð af öllum stelpunum. Donna neitaði fyrst að taka víti en svo sagði Porca að hún ætti að spyrna og þetta heppnaðist hjá okkur. Við erum komnar áfram og það er það sem skiptir máli,” sagði Lilja að lokum eftir 7-6 sigur Keflavíkur í vítaspyrnukeppni.

 

Grindvíkingar höfðu góðan 3-1 sigur á ÍR í VISA bikar karla á ÍR-velli. Ray Anthony Jónsson kom Grindavík í 1-0 en heimamenn jöfnuðu metin í 1-1. Scott Ramsey sem er funheitur þessa dagana kom Grindavík í 2-1 og það var að lokum hinn eldsnöggi Mounir Ahandour sem gerði þriðja og síðasta mark Grindavíkur og lokatölurnar því 3-1 eins og áður greinir.

 

Njarðvíkingar máttu sætta sig við 2-1 ósigur gegn Fjölnismönnum í Grafarvogi en það var Alfreð Elías Jóhannsson sem minnkaði muninn í 2-1 á 92. mínútu leiksins. Njarðvíkingar voru með nokkuð breytt lið frá síðasta leik þar sem leikmenn á borð við Snorra Má Jónsson, Albert Sævarsson, Sævar Eyjólfsson, Sverri Þór Sverrisson og Martein Guðjónsson voru ekki í hópnum að þessu sinni.

 

VF-myndir/ Jón Björn Ólafsson og Stefán Þór Borgþórsson

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn