Keflavík marði Hauka
Keflvíkingar sigruðu Hauka í framlengingu í Toyotahöllinni í gærkvöldi í Reykjanesmótinu í körfubolta 103-102.
Í fyrri hálfleik virtust Keflvíkingar hafa tögl og hagldir á leiknum og leiddu með umþb 20 stigum. Í seinni hálfleik virtust þeir hinsvegar slaka of mikið á klónni og Haukar gengu á lagið. Hinsvegar náðu Keflvíkingar að halda fengnum hlut og unnu sem fyrr segir naumt.
Mynd/Frétt: [email protected]: Valur Orri Valsson reynir að brjótast framhjá vörn Hauka