HSS
HSS

Íþróttir

Keflavík mætir Val í Vodafonehöllinni
Þriðjudagur 16. október 2007 kl. 09:34

Keflavík mætir Val í Vodafonehöllinni

Einn leikur fer fram í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í kvöld þegar Keflavík heimsækir Val í Vodafonehöllina að Hlíðarenda. Leikurinn hefst kl. 20:00.

 

Valskonur sátu hjá í fyrstu umferð þar sem sjö lið eru í deildinni en Keflvíkingar skelltu nýliðum Fjölnis 88-51 í Sláturhúsinu í Keflavík.

 

Valsliðið samanstendur af leikmönnum sem skipuðu lið ÍS síðustu tímabil og fer þar fremst í flokki landsliðsmiðherjinn Signý Hermannsdóttir. Valur er nokkuð óskrifað blað fyrir leiktíðina en þær áttu fínu gengi að fagna á undirbúningstímabilinu.

 

Staðan í deildinni

 

VF-Mynd/ [email protected] - Rannveig Randversdóttir í baráttunni gegn Fjölni í fyrstu umferðinni.

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn