Keflavík mætir ÍR í kvöld
Þrír leikir fara fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld og munu Keflavíkurkonur taka á móti ÍR á Keflavíkurvelli en leikur liðanna hefst kl. 19:15.
Keflavík er í 4. sæti deildarinnar með 3 stig eftir tvo leiki en Keflavík lagði Þór/KA 7-0 í fyrsta leik en tapaði svo 3-1 gegn Stjörnunni í Garðabæ. Nýliðar ÍR hafa einungis leikið einn leik í deildinni til þessa er þær mættu Valskonum og töpuðu þar með sex mörkum gegn engu.
Aðrir leikir kvöldsins:
Breiðablik-Stjarnan
Fylkir-KR