Keflavík mætir Dungannon Swifts
Knattspyrnulið Keflavíkur mætir norður-írska liðinu Dungannon Swifts í Inter-Toto keppninni í sumar.
Dungannon tryggði sér fyrir skemmstu 4. sæti í norður-írsku deildinni en henni lýkur um næstu helgi.
Dungannon Swifts var stofnað árið 1949 og hefur lengst af leikið í neðri deildum á Norður-Írlandi. Liðið var hins vegar að ljúka þriðja ári sínu í efstu deild þar í landi. Heimavöllur liðsins heitir Stangmore Park og tekur um 3000 áhorfendur. Fyrri leikur Keflavíkur og Dungannon verður í Keflavík en líklegt er að sá seinni verði á Mourneview Park í Lurgan en það er heimavöllur Glenavon.
www.keflavik.is