Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflavík mætir Breiðablik á morgun í fótbolta
Föstudagur 14. janúar 2011 kl. 09:57

Keflavík mætir Breiðablik á morgun í fótbolta

Keflavík mætir Breiðablik á morgun kl. 10:00 í Reykjaneshöllinni í Fotbolta.net mótinu í fótbolta. Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, mætir svo í heimsókn í þáttinn Fotbolti.net eftir leik liðsins gegn Breiðablik. Þátturinn er á milli 12 og 13 á X-inu FM 97,7.

Það er mikið að gera hjá Willum þessa dagana en hann er að þjálfa landsliðið í Futsal sem er við æfingar fyrir undankeppni EM sem fer fram síðar í mánuðinum. Sex leikmenn Keflavíkur eru í æfingahópi fyrir Evrópukeppnina í Futsal en hópurinn æfir stíft þessa dagana. Í næstu viku verður svo 14 manna hópur valinn til að leika fyrstu Futsal-landsleiki Íslands. Keflvíkingarnir í hópnum eru Guðmundur Steinarsson, Magnús Þorsteinsson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Magnús Þórir Matthíasson, Sigurður Sævarsson og Bojan Ljubicic.

Futsal-hópurinn æfði um síðustu helgi undir stjórn Willums þjálfara og þá var einnig leikinn pressuleikur að Ásvöllum. Landsliðið vann þann leik 7-6 þar sem Guðmundur Steinars og Magnús Þorsteins skoruðu báðir tvö mörk fyrir landsliðið en Bojan gerði þrjú fyrir pressuliðið og Sigurður Sævars tvö. Leikmenn Keflavíkur skoruðu því níu af 13 mörkum leiksins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn