Bygg
Bygg

Íþróttir

Fimmtudagur 13. nóvember 2003 kl. 13:44

Keflavík leikur gegn Toulon í kvöld

Keflavík leikur sinn annan leik í Evrópukeppni bikarhafa í kvöld. Mótherjarnir eru franska liðið Toulon, en þeir töpuðu fyrir CAB Madeira í fyrsta leik sínum í keppninni. Í gær bar Ovarense sigurorð af Madeira þannig að með sigri í kvöld kemst Keflavíkí toppsæti riðilsins, en þó má búast við því að Toulon, sem leikur á heimavelli, verði allt annað en auðveld bráð vegna þess að franska deildin er mjög sterk og heimamenn því engir aukvisar.

Falur Harðarson sagði í samtali við Víkurfréttir að hans menn myndu leggja upp með svipaða leikaðferð og gekk svo vel gegn Ovarense á dögunum, þ.e. að keyra upp hraðann og leggja áherslu á skot utan af velli. Leikurinn hefst kl. 19:00 að íslenskum tíma og munu úrslit leiksins koma á vef Víkurfrétta um leið og þau berast.

Bílakjarninn
Bílakjarninn