Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflavík lagði Völsung
Mánudagur 14. júní 2010 kl. 09:01

Keflavík lagði Völsung


Keflavík tók á móti liði Völsungs í 1. deild kvenna á föstudagskvöldið.  Leikurinn fór rólega af stað og fátt bar til tíðinda í fyrr hálfleik. Sterkur varnarleikur einkenndi leik beggja liða eins og hálfleikstölur gáfu til kynna, 0-0.

Í seinni hálffleik færðist fjör í leikinn, Keflavíkurstúlkur mættu einbeittar til leiks og sköpuðu sér mörg marktækifæri. Á 58.mínútu uppskára þær svo mark sem Nína Ósk Kristinsdóttir skoraði af stuttu færi. Fanney Þórunn Kristinsdóttir bætti svo við öðru marki þegar langt var liðið á leikinn og urðu úrslit hans 2-0 fyrir Keflavík.
---
Mynd/Jóhann Gunnarsson – Fyrra mark Keflavíkur í uppsiglingu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn