HSS
HSS

Íþróttir

Keflavík lagði Víkinga í miklum baráttuleik
Mánudagur 7. júní 2004 kl. 22:48

Keflavík lagði Víkinga í miklum baráttuleik

Það er alveg frábært að ná að pota honum svona og vinna leikinn“, sagði Þórarinn Kristjánsson eftir að hafa tryggt Keflvíkingum nauman sigur á Víkingum í miklum baráttuleik í kvöld, 1-0.

Það er ekki djúpt í árina tekið þegar sagt er að leikurinn í kvöld hafi ekki verið mikið fyrir augað. Fátt markvert gerðist framan af og var hreinlega ekkert í gangi í öllum fyrri hálfleik. Víkingar voru þó meira með boltann og börðust eins og ljón.
Spilið hjá báðunm liðum gekk að mestu út á háar sendingar sem ekkert varð úr.

Seinni hálfleikur bauð upp á meira af því sama en þó fóru liðin að gera sig aðeins líklegri við mörk andstæðinga.
Viktor Bjarki Arnarsson lét vita af sér í upphafi hálfleiksins þegar hann tók á rás með boltann en hann skaut í varnarmann og í horn sem varð ekkert úr.

Eftir klukkutíma leik var Hólmar Örn Rúnarsson kominn í ákjósanlegt færi í vítateig Víkinga en skotið fór langt framhjá.
Fimm mínútum síðar var það Þórarinn Kristjánsson sem lét í sér heyra en skot hans fór í varnarmann.

Keflvíkingar komust svo loksins yfir á 73. mínútu þegar téður Þórarinn fékk boltann í vítateignum og renndi honum í netið. Keflavíkingar höðu tekið langt innkast inn á teiginn og Sreten Djurovic náði góðu skoti sem Martin Tranicik varði vel en missti frá sér. Þar kom bjargvætturinn sjálfur aðvífandi og afgreiddi tuðruna snyrtilega og náð forystunni fyrir heimamenn.
Eftir markið sóttu gestirinir í sig veðrið og máttu Keflvíkingar oft þakka sínum sæla auk Ólafs Gottskálkssonar, markvarðar, sem stóð vaktina með sóma í kvöld. Færi Víkinga voru svo sem ekki þau allra hættulegustu, en Ólafi brást ekki bogalistin.

Litlu mátti muna þegar venjulegur leiktími var liðinn að Keflvíkingar bættu öðru marki við, en Magnús Þorsteinsson fór illa með frábært færi þegar hann lét Tranicik verja frá sér einn á móti einum. Skömmu síðar komst hann aftur einn í gegn en þá sá varnarmaður við honum.

Keflvíkingum létti stórlega þega Gylfi Orrason flautaði leikinn af, en mikilvægur sigur var í höfn og annað sætið var tryggt í bili.

„Þetta var mjög mikilvægur leikur“, sagði Milan Stefán Jankovic, þjálfari Keflvíkinga, eftir leikinn. „Það var mikil pressa á okkur og það var mikil spenna þannig að við náðum ekki að spila okkar leik og vorum hræddir við að taka sénsa. Það er mjög erfitt að spila á móti Víkingum, en þeir voru grimmir og lokuðu á okkur og börðust vel. Víkingarnir eru með sterkt lið en eru búnir að vera mjög óheppnir í sumar.“

Þórarinn tók undir með þjálfaranum. „Þetta var mikill barningur á milli tveggja góðra liða, en Víkingar eru búnir að vera óheppnir með að það lendir alltaf hinum meginn í leikjunum þeirra, við vorum bara heppnari í dag. En svona er boltinn.“ Næsti leikur Keflvíkinga er á miðvikudaginn í næstu viku og er Þórarinn ekki vafa um það hvernig hann fer. „Við ætlum bara að rassskella þá!“
VF-myndir Héðinn Eiríksson
Bílakjarninn
Bílakjarninn