Keflavík kjöldró Grindavík
Grindavíkurstúlkur heillum horfnar í síðustu leikjum
Keflavíkurstúlkur rótburstuðu Grindavík í Domino´s deild kvenna í TM höllinni í dag með 28 stiga mun, 82-54. Grindvíkingar leika því úrslitaleik við Valskonur um 4. og síðasta sætið í úrslitakeppninni.
Það var ljóst frá fyrstu mínútu að einungis annað liðið væri komið til að keppa. Grindavíkurstúlkur voru með lafandi haus í öllum sínum aðgerðum og Keflvíkingar, sem léku án Birnu Valgarðsdóttur og Ingunnar Emblu Kristínardóttur, þurftu ekki að hafa mikið fyrir því að yfirspila gestina og leiddu 45-24 í hálfleik.
Síðari hálfleikur var formsatriði eitt fyrir heimastúlkur og í raun gerðu Grindvíkingar lítið sem að benti til þess að liðið eigi heima í úrslitakeppni í deild þeirra bestu.
Stigahæstar í liði heimamanna voru Carmen Tyson Thomas með 22 stig og Sara Rún Hinriksdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir skoruðu 15 hvor.
Hjá Grindavík var Kristina King langatkvæðamest með 14 stig.
Keflavík hefndi þannig fyrir tapið í bikarúrslitum sem fram fóru í febrúar og um leið komu Grindvíkingar sér í þá stöðu að þurf að spila hreinan úrslitaleik við Val um síðasta lausa sætið í úrslitakeppninni. Sá leikur fer fram í Röstinni á miðvikudaginn kemur.
Viðtal við Sverri Þór Sverrisson, þjálfara Grindavíkur, má finna hér en það var Karfan.is sem tók Sverri Þór tali að leik loknum.