Keflavík Íslandsmeistari í minnibolta stúlkna
Stelpurnar í minnibolta 11.ára urðu Íslandsmeistarar í sínum aldursflokki um síðustu helgi þegar 4. og síðasta umferð Íslandsmótsins fór fram í Toyota höllinni í Keflavík, en þetta er yngsti árgangurinn sem keppir um þennan eftirsótta titil.
Óhætt er að segja að stelpurnar hafi farið á kostum í vetur en þær töpuðu ekki leik og unnu alla sína 16 leiki á Íslandsmótinu með talsverðum yfirburðum. Þarna er komið enn eitt stúlknalið félagsins sem á sér glæsilega framtíð í körfuboltanum ef þær halda rétt á spilunum og verða áfram jafn duglegar að æfa og leggja sig fram. Nú þegar eru 7. og 8. flokkur stúlkna einnig búnar að landa Íslandsmeistaratitli þetta árið.
Á laugardag var fyrst leikið gegn liði Ármanns og urðu lokatölur 52-13. Seinni leikurinn var gegn Grindavík og urðu lokatölur þar á svipuðum nótum, 59-11. Aldrei spurning um sigur í þessum leikjum.
Á sunnudag sigruðu stelpurnar lið Fjölnis 62-15 í þriðja leik. Að lokum var leikið til úrslita gegn spræku liði Hrunamanna. Töluverð spenna og barátta var í báðum liðum í upphafi leiks og var staðan eftir 1. leikhluta 11-3 og í halfleik stóðu leikar 22-8 fyrir Keflavík. Í síðari hálfleik dró í sundur með liðunum og svo fór að Keflavík sigraði mjög örugglega 60-19.
Eftir verðlaunaafhendingu bauð Barna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur nýbökuðum Íslandsmeisturum í pizzuveislu á Langbest. Það er klárt mál að Björn Einarsson, þjálfari stúknanna, hefur unnið afbragðs starf með þær í vetur.