Keflavík í 3. sæti eftir 10 umferðir
Þegar 10. umferð Pepsí-deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöldi kom í ljós að Keflavík er í þriðja sæti deildarinnar með 19 stig, einu stigi á eftir liðunum í 1.-2. sæti, sem hafa 20 stig. Það eru Breiðablik og ÍBV.
Grindvíkingar eru sem fyrr í 11. sæti deildarinnar með 6 stig, einu meira en Haukar sem eru á botninum með 5 stig og einu minna en Selfoss í 10. sæti, sem hefur 7 stig eftir 10 umferðir.
Næstu leikir eru á fimmtudag þegar annars vegar verður toppslagur á milli Eyjamanna og Keflvíkinga á Hásteinsvelli í Eyjum og hins vegar fá Grindvíkingar Selfyssinga til Grindavíkur. Það er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir Grindavík í botnbaráttunni.