Keflavík framlengir við 6 leikmenn kvennaliðs
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur framlengt samningum við 6 leikmenn kvennaliðs Keflavíkur. Samningar þess efnis voru undirritaðir í vikunni. Þær framlengdu sínum samning við liðið voru Rannveig Randversdóttir, Svava Stefánsdóttir, Hrönn Þorgrímsdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir, Birna Valgarðsdóttir og Marín Karlsdóttir. Að auki samdi Körfuknattleiksdeild Keflavíkur við Hrund Jóhannsdóttur í aprílmánuði, en vonir standa til að hún eigi eftir að koma sterk inn í liðið á næsta tímabili. Sérstaklega þegar horft er til þess að Keflavíkurliðinu vantaði á köflum öflugan frákastara undir
körfuna í mörgum mikilvægum leikjum á síðasta tímabili.
Frá vinstri: Hrönn Þorgrímsdóttir, Rannveig Randversdóttir, Jón Halldór Eðvaldsson, Svava Stefánsdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir. Á myndina vantar Birnu Valgarðsdóttur og Marín Karlsdóttur. Mynd/keflavik.is