Keflavík fær Hauka í heimsókn í körfunni
Keflavíkingar fá Haukamenn í heimsókn í kvöld en leikurinn fer fram í Toyota höllinni klukkan 19:15. Keflvíkingar hafa unnið 3 leiki af 6 í Iceland Express-deildinni og eru vonandi komnir á góða siglingu. Haukar hafa einnig unnið 3 leiki af 6 og eru liðinu því jöfn að stigum í deildinni.
Á morgun leika Grindvíkingar gegn Stjörnumönnum Teits Örlygssonar og Njarðvíkingar fá Fjölni í Ljónagryfjuna.