Keflavík eygir von: Bundu enda á 18 mánaða sigurgöngu Hauka
Baráttuvilji Keflavíkurkvenna var engu líkur í kvöld, 14 stigum undir fyrir fjórða og síðasta leikhlutann tókst þeim að jafan metin gegn margföldum meisturum Hauka og að lokum landa 78-81 sigri að Ásvöllum. Með sigrinum batt Keflavík enda á 27 leikja sigurgöngu Hauka á heimavelli en þar höfðu Haukakonur ekki tapað í 18 mánuði ef frá er talin Evrópukeppnin. Staðan í úrslitaeinvígi Hauka og Keflavíkur er því 2-1 Haukum í vil og ljóst að á laugardag verður brotið blað í íslenskri sjónvarpssögu þegar RÚV mun sýna í beinni útsendingu frá fjórða leik Hauka og Keflavíkur sem fram fer í Sláturhúsinu.
Aldrei áður hefur kvennakörfuboltaleikur í úrslitakeppninni verið sýndur í beinni útsendingu hér á landi en á því verður breyting á laugardag. Fjórði leikurinn verður í Sláturhúsinu og hefst hann kl. 16:15 en þann daginn verður sannkölluð sjónvarpsveisla fyrir körfuknattleiksunnendur þar sem SÝN verður með þriðja leik Njarðvíkur og KR í beinni útsendingu kl. 14:50.
Að leik kvöldsins og þeim ótrúlegu sveiflum sem einkenndu hann frá upphafi til enda.
Bæði lið voru að pressa í upphafi leiks og falla í svæðisvörn en Haukar voru sterkari til að byrja með og höfðu yfir 18-14 að loknum fyrsta leikhluta. Sigrún Ámundadóttir fór út af snemma í 1. leikhluta og leit allt út fyrir að hún hefði meitt sig illa en Haukum til lukku harkaði hún af sér og kom aftur inn á áður en leikhlutinn var úti.
Það þótti nokkurri furðu sæta að Keflavík væri í raun með forystu í hálfleik en þær grýttu boltanum frá sér í gríð og erg og var
Sigrún Ámundadóttir stóð í ljósum logum í þriðja leikhluta og setti niður fimm þriggja stiga körfur fyrir Hauka og fékk góðan tíma til þess að vanda skot sín á meðan Kefalvík lék hripleka svæðisvörn. Þá gerði Pálín Gunnlaugsdóttir tvær þriggja stiga körfur í röð í leikhlutanum og breytti stöðunni í 55-46 Haukum í vil. Haukar unnu þriðja leikhluta 28-12 og héldu eflaust flestir ef ekki allir sem voru staddir á Ásvöllum í kvöld að Haukar væru orðnir Íslandsmeistarar annað árið í röð. Þriðja leikhluta lauk í stöðunni 66-52 fyrir Hauka.
Algjör kúvending varð á leik Keflavíkur í fjórða leikhluta en Haukar voru samt ávallt að stríða Keflavík með því að hirða af þeim hvert frákastið af öðru, bæði í vörn og sókn. Framan af lokaleikhlutanum benti ekkert annað til þess en að
Haukar komust í 74-72 en Bryndís Guðmundsdóttir, sem vöknuð er af værum blundi, jafnaði metin í 74-74 og Keflavík komst í 74-76 þegar mínúta var til leiksloka.
Haukum misfórst að skora í næstu sókn en TaKesha kom Kefalvík fimm stigum yfir 75-80 þegar 27 sekúndur voru til leiksloka. Haukar tóku leikhlé og síðar innkast við miðju, boltinn barst til Helenu Sverrisdóttur sem setti niður glæsilega þriggja stiga körfu og staðan 78-80 og 18 sekúndur til leiksloka. Haukar brutu strax á Bryndísi sem fékk boltann hjá Kefalvík og 15 sekúndur til leiksloka. Bryndís hitti úr fyrra vítinu og staðan 78-81. Haukar áttu síðustu sóknina og fengu þrjár tilraunir til þess að jafna metin með þriggja stiga körfu en ekkert skotanna rataði rétta leið og því fögnuð Keflavíkurkonur sigri í sveiflukenndum leik.
Atkvæðamest í liði Keflavíkur í kvöld var
Hjá Haukum var Sigrún Ámundadóttir með 22 stig en hún gerði 16 stig í þriðja leikhluta. Sigrún tók auk þess 8 fráköst í leiknum. Þá gerði Kristrún Sigurjónsdóttir 16 stig en
Leikur kvöldsins var ein rússíbanareið frá upphafi til enda, Keflavík leiddi með fjórum stigum í hálfleik en Haukar vinna þriðja leikhluta 28-12 en Keflavík svarar fyrir sig í þeim fjórða með því að vinna leikhlutann 12-27.
Liðin mætast í fjórða sinn á laugardag kl. 16:15 í Sláturhúsinu í Keflavík og verður leikurinn í beinni útsendingu hjá RÚV.
Gangur leiksins:
7-2,12-6,18-14
23-16,29-28,38-42
42-44,55-46,66-52
72-62,72-72,78-81