Keflavík eldri leikur sinn fyrsta leik í kvöld
Keflvíkingar tefla fram karlaliði í Íslandsmóti eldri flokka en það er fyrir leikmenn 30 ára og eldri. Þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem Keflavík sendir lið til leiks í þessum flokki. Skemmst er þess að
Það eru 12 lið skráð til leiks í ár og verður fyrsti leikur Keflvíkinga í kvöld (þriðjudaginn 5. júní) gegn Selfyssingum. Leikið verður á gamla Iðavallarsvæðinu ofan við Húsasmiðjuna og hefst leikurinn kl. 20:00.
Það má búast við gömlum töktum og verður skemmtanagildið og leikgleðin væntanlega í fyrirrúmi. Liðið er skipað valinkunnum leikmönnum sem hafa gert garðinn frægann s.l. ár og án efa þess virði að kíkja á Iðavellina í kvöld og sjá hvort drengirnir hafi einhverju gleymt. Leiki liðsins í sumar má finna með því að smella hér.