Keflavík á botninum í riðlinum
Keflavík tapaði um helgina 1-2 í Fótbolta.net mótinu er þeir mættu Breiðablik í Reykjaneshöllinni. Keflavík situr þar með á botninum í riðlinum, stigalaust.
Ísak Örn Þórðarson kom Keflavík yfir í fyrri hálfleik með frábærum skalla eftir hornspyrnu en Ísak er á reynslu hjá liðinu frá Njarðvík. Blikar voru mun betra liðið í seinni hálfleik og jafnaði Árni Vilhjálmsson leikinn með skalla. Andri Rafn Yeoman kom svo gestunum yfir eftir mikil mistök varnarmanns Keflavíkur. Bæði lið voru með blöndu af ungum og reyndari leikmönnum en um sex leikmenn Keflavíkur höfðu litla reynslu í efstu deild.
Einnig mætti Grindavík HK í sama riðli og gerðu liðin jafntefli 1-1 í Kórnum. HK-ingar komust yfir í fyrri hálfleik þegar Atli Valsson kastaði sér fram og skallaði fyrirgjöf í netið. Grindavík náðu svo að jafna í síðari hálfleiknum en þeir eru að leika sinn fyrsta leik í vetur eftir pásu.
Staðan í riðlinum:
mun stig
1. Breiðablik +1 3
2. Grindavík 0 1
3. HK 0 1
4. Keflavík -1 0