Keflavík 75 ára í dag

Árið 1994, þegar sameining sveitarfélaganna Keflavíkur, Hafna og Njarðvíkur stóð fyrir dyrum, var ráðist í að sameina öll félögin í Keflavík undir einn hatt. Þar komu inn skotfélagið, fimleikafélagið, sundfélagið, ÍK, KFK og Ungmennafélag Keflavíkur.
Fyrir það höfðu Keflvíkingar oft keppt undir merkjum Íþróttabandalags Keflavíkur, ÍBK, sem er sambærilegt við starfsemi ÍRB í dag. Nýja félagið hlaut nafnið Íþrótta- og Ungmennafélag Keflavíkur en var skömmu síðar breytt í Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag og heitir það enn.
Ekki stendur til að halda upp á afmælið með pompi og prakt heldur munu stjórnir deilda Keflavíkur hittast yfir kvöldverði og eiga notanlega kvöldstund.
Víkurfréttir óska Keflavík til hamingju með tímamótin og óska aðstandendum og félögum velfarnaðar á komandi árum.