Bygg
Bygg

Íþróttir

Karfan: Töp á línuna
Stefan Bonneau og félagar í Njarðvík mæta Stjörnumönnum í 8 liða úrslitum
Fimmtudagur 12. mars 2015 kl. 21:22

Karfan: Töp á línuna

Grindavík dettur niður í 8. sæti og mætir KR

Leikjum kvöldsins í körfunni er nú lokið með ósigrum allra Suðurnesjaliðanna. 

Njarðvíkingar biðu lægri hlut gegn Þór í Þorlákshöfn, 89-84, eftir að hafa verið yfir í hálfleik en slakur 3. leikhluti gerði útslagið fyrir Njarðvíkinga sem að detta úr þriðja sæti deildarinnar niður í það fjórða með ósigrinum í kvöld og munu mæta bikarmeisturum Stjörnunnar í 8 liða úrslitum sem er mjög athyglisverð rimma. Njarðvíkingar eru eina Suðurnesjaliðið sem mun hafa heimavallarrétt í 1. umferð.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Í Stykkishólmi voru það heimamenn sem að rétt mörðu Grindvíkinga í háspennuleik, 91-89 og sendu þá gulklæddu þar með niður í 8. sæti deildarinnar. Það þýðir að Grindavík fær það erfiða hlutskipti að mæta Íslandsmeisturum KR í 8 liða úrslitum en þessi lið léku einmitt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn á síðasta tímabili. 

Keflvíkingar gátu með sigri náð sér í heimavallarrétt með sigri á Haukum í Hafnarfirði. Það gekk ekki eftir en Haukar leiddu nær allan leikinn og unnu sangjarnan sigur, 89-83. Með ósigrinum enda Keflvíkingar í 6. sæti deildarinnar og munu mæta téðum Haukum í 8 liða úrslitum og ljóst að þar verður einnig um hörkueinvígi að ræða.