Karfan: Reykjanes Cup hefst kvöld
Körfuboltamótið Reykjanes Cup Invitational hefst í kvöld og stendur til föstudags og verður haldið í Reykjanesbæ og Grindavík. Sex lið eru skráð til leiks en þau eru Grindavík, Keflavík, Njarðvík, Breiðdablik, Snæfell og Stjarnan.
Færustu dómarar landsins verða fengnir til þess að dæma í mótinu og munu leikirnir fara fram í Ljónagryfjunni (Njarðvík), Toyota Höllinni (Keflavík) og Röstinni (Grindavík). Ætlunin var að Reykjanes Cup Invitational yrði alþjóðlegt mót með erlendum liðum, en því miður náðist ekki að bóka nein í tæka tíð þetta árið. Stefnan er að mótið verði árlegur viðburður og eigi eftir að stimpla sig inn sem eitt af stóru mótunum á ári hverju í körfuboltanum.
500 kr aðgangseyrir er hvert kvöld fyrir alla leiki sem spilaðir eru á hverju kvöldi.
Þriðjudagur 1. sept (Ljónagryfjan, Njarðvík)
19:00 Snæfell - Grindavík
20:45 Njarðvík - Keflavík
Miðvikudagurinn 2. sept (Röstinni, Grindavík)
19:00 Grindavík - Breiðablik
20:45 Njarðvík - Stjarnan
Fimmtudagurinn 3. sept (Toyota Höllin, Keflavík)
19:00 KR - Snæfell
20:45 Keflavík - Stjarnan
Föstudagurinn 4. sept (Toyota Höllin, Keflavík)
17:15 5-6 sæti
19:00 3-4 sæti
20:45 Úrslitaleikur