Bygg
Bygg

Íþróttir

Karfan: Njarðvík vann KFÍ, Grindavík vann ÍR
Sunnudagur 29. febrúar 2004 kl. 21:06

Karfan: Njarðvík vann KFÍ, Grindavík vann ÍR

Njarðvíkingar og Grindvíkingar unnu bæði leiki sína í Intersport-deildinni í kvöld. Það gerðu Snæfellingar líka og tryggðu sér þar með deildarmeistaratitilinn í ár.

 

NJARÐVÍK-KFÍ

Njarðvík vann KFÍ með miklum yfirburðum í Ljónagryfjunni, 125-81. Heimamenn höfðu örugga forystu allan leikinn og voru ekki í vandræðum með að klára lánlausa Ísfirðinga. Leikurinn var hraður og skemmtilegur og mikið skorað. Eftir fyrsta leikhluta voru Njarðvíkingarnir komnir með 10 stiga forystu, 33-23, og jókst munurinn jafnt og þétt það sem eftir lifði leiks.

Undir lokinn var sigurinn í höfn og fengu þá ýmsir leikmenn að spreyta sig sem annars hafa ekki fengið mörg tækifæri og stóðu sig með mikilli prýði. Má þar nefna t.d. Kristján Sigurðsson, Arnar Smárason og Sveinbjörn Skúlason sem nýttu sínar fáu mínútur vel.

 

Friðrik Ragnarsson gat varla verið annað en sáttur við frammistöðu sinna manna í leiknum. „Þetta var gott hjá okkur. Það var sérstaklega gott að sóknin gekk svona vel hjá okkur þar sem hún hefur verið misjöfn hjá okkur að undanförnu. Vonandi erum við að komast á gott ról fyrir úrslitakeppnina, en við verðum að vinna næsta leik hjá okkur sem verður gegn Tindastóli, ef við ætlum að tryggja fjórða sætið.“

 

Stigahæstir:

Njarðvík: Brandon Woudstra 25, Páll Kristinsson 24/10, Brenton Birmingham 18, Friðrik Stefánsson 15, Halldór Karlsson 13.

KFÍ: Troy Wiley 28/18, Bethuel Fletcher 18, JaJa Bey 13.

 

Hér má finna tölfræði leiksins

 

 

ÍR-GRINDAVÍK

Grindvíkingar unnu sannfærandi sigur á ÍR í Austurbergi, 69-88. Grindvíkingar byrjuðu feiknavel og slógu heimamenn útaf laginu með góðum fyrsta leikhluta þar sem þeir náðu 15 stiga forystu. Sigurinn var ekki í mikilli hættu eftir það og mætti þakka það góðri vörn þar sem þeir héldu alveg aftur af lykilmönnum ÍR-inga auk þess sem fyrirliðinn Páll Axel Vilbergsson fór á kostum í leiknum.

 

Friðrik Ingi, þjálfari Grindvíkinga, var ánægður með frammistöðu sinna manna í kvöld. „Leikurinn skipti ÍR náttúrulega engu máli og kannski mátti sjá það af leik þeirra. Við vorum kannski full villtir á köflum í sókninni, en komumst upp með það að þessu sinni. Ég var sérstaklega ánægður með baráttuna og vörnina hjá okkur í kvöld, en við getum enn bætt ýmislegt fyrir úrslitakeppnina.“

 

Stigahæstir:

Grindavík:

Páll Axel Vilbergsson 38, Darrel Lewis 16, Jackie Rogers 16, Þorleifur Ólafsson 10.

ÍR: Ólafur Þórisson 15, Eugene Christopher 15, Ómar Sævarsson 10.

 

Hér má finna tölfræði leiksins

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn