Karfan: Njarðvík og Keflavík tapa illa
Vart mátti á milli sjá hvort liðið stæði sig ver í kvöld, Keflavík eða Njarðvík. Bæði áttu afleita leiki og töpuðu dýrmætum stigum í deildarkeppninni.
TINDASTÓLL-KEFLAVÍK 105-81
Keflvíkingar áttu enn einn slakan útileikinn þegar þeir töpuðu illa fyrir Tindastóli í kvöld þar sem þeir léku illa að öllu leyti og leyfðu Stólunum að komast upp með hvað sem var og stærsti ósigur vetrarins staðreynd.
Framan af voru leikar nokkuð jafnir, en fyrir hálfleik náðu Stólarnir forustunni og leiddu 49-43 í hálfleik. Í þeim seinni datt allur botn úr leik Keflvíkinga og þeir sigu niður á áður óþekkt plan þar sem ekkert virtist ganga upp og enginn leikmaður fann sig. Bradford var sýnu skástur, en jafnvel Derrick Allen, sem hefur spilað eins og engill í allan vetur og varla stigið feilspor, átti ekki góðan leik þar sem hann hitti ekki vel utan af velli og réði ekkert við Nick Boyd hjá Tindastóli undir körfunni.
Þjálfarar Keflvíkinga, þeir Falur og Guðjón, voru ómyrkir í máli að leikslokum og er m.a. haft eftir Guðjóni á heimasíðu Keflavíkur að allir leikmenn liðsins hafi verið lélegir og leikurinn hafi verið sá daprasti sem liðið hefur sýnt í vetur. „Þetta var bara algert andleysi hjá okkur. það skipti engum máli hvað við reyndum, ekkert gekk upp“, sagði Falur í samtali við Víkurfréttir.
Stigahæstir:
K: Nick Bradford 23/10, Derrick Allen 22.
T:Cook 33/7 stoð/7 stol, Sanders 24/8 frk/7stoð, Boyd 21/15.
Tölfræði leiksins má finna hér
NJARÐVÍK-BREIÐABLIK 86-91
Njarðvíkingar léku afspyrnuilla á heimavelli í leik sínum gegn Breiðabliki í kvöld.
Framan af leik virtust Njarðvíkingar hafa undirtökin, en arfaslakur sóknarleikur í seinni hálfleik kostaði þá sigurinn þar sem hver sóknin á fætur annari fór forgörðum þar sem Njarðvíkingar sendu boltann beint í hendur andstæðinganna sem fengu að launum hraðaupphlaup og nýttu skot sín mjög vel. Blikarnir náðu frumkvæðinu í leiknum strax í byrjun seinni hálfleiks og spiluðu agaðan leik og nýttu sóknir sínar vel. Þrátt fyrir að heimamenn tækju stöku fjörkippi kom allt fyrir ekki og Blikar unnu sanngjarnarn og verðskuldaðan sigur og fögnuðu í leikslok eins og meistarartitillinn sjálfur væri í höfn.
Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkinga var ráðþrota að leik loknum og skildi hvorki upp né niður í leik sinna manna. „Þetta var bara algert einbeitingar- og viljaleysi og þetta var á tímabili eins og við værum að reyna að tapa.“ Þegar hann var ynntur eftir því hvort hann væri orðinn hræddur um að missa af fjórða sætinu, og þar með heimaleikjaréttinum í fyrstu umferð úrslitakeppninnar hafði hann á orði að slíkt skipti ekki máli á meðan liðið spilaði eins og í kvöld og mætingin væri eins dræm á leikina. Hann gat þess þó að þeir fáu stuðningsmenn sem mættu í kvöld hefðu stutt dyggilega við bakið á sínum mönnum.
Stigahæstir:
N: Páll Kristinsson 25/12, Brandon Woudstra 25, Friðrik Stefánsson 11, Brenton Birmingham 10.
T: Williams 36, Virijevic 18, Pálmi Sigurgeirsson 17.
Tölfræði leiksins má finna hér
VF-mynd: Þorgils Jónsson. Úr leik Njarðvíkur og Breiðabliks í kvöld