Bygg
Bygg

Íþróttir

Karfan: Keflavík vann Þór í karlaflokki, ÍS í kvennaflokki
Mánudagur 1. mars 2004 kl. 21:57

Karfan: Keflavík vann Þór í karlaflokki, ÍS í kvennaflokki

 KEFLAVÍK-ÞÓR Intersport-deildin

 

Keflvíkingar sendu Þórsara niður í 1. deildina með því að leggja þá að velli, 117-102, á heimavelli sínum.

 

Framan af leik var jafnræði með liðunum, en Hjörtur Harðarson setti þá fjórar 3ja stiga körfur í röð og náði góðu forskoti fyrir Keflvíkinga og hélst sá munur lengst af.

Staðan í hálfleik var 63-42 og virtust heimamenn hafa leikinn í hendi sér. Þórsarar voru alls ekki á þeim skónum þar sem þeir voru að berjast fyrir sæti sínu í úrvalsdeildinni og komu sterkir til leiks í seinni hálfleikinn. Þeir söxuðu stöðugt á forskotið og náðu að minnka muninn í 8 stig þegar best lét, en Keflvíkingar tóku þá við sér og sigldu framúr á ný.

Í síðasta leikhluta hleyptu Keflvíkingar Þórsurum enn einu sinni inn í leikinn en náðu loks að tryggja sér sigur með góðri rispu fyrir utan þriggja stiga línuna, en þeir fóru hreinlega hamförum í langskotunum í kvöld og hittu úr 19 þriggja stiga skotum.

 

Falur Harðarson, annar þjálfara Keflvíkinga, sagði í samtali við Víkurfréttir að sínir menn hefðu átt í erfiðleikum með að halda einbeitningu í leiknum. „Þessir síðustu leikir eru búnir að vera eins og rússíbanaferðir hjá okkur þar sem við höfum verið að ná forystu og missa hana aftur niður til skiptis. Við náðum ekki að halda stöðugleika í spilinu, en náðum sigrinum og tryggðum þriðja sætið.“

 

Stigahæstir:

 

Keflavík: Gunnar Einarsson 25, Nick Bradford 20, Hjörtur Harðarson 17, Sverrir Þór Sverrisson 11, Magnús Þór Gunnarsson 11.

Þór: Rob Hodgson 26, Leon Brisport 25, Nate Brown 25.

 

 

ÍS-KEFLAVÍK 1.deild kvenna

Keflvíkingar unnu enn einn sigurinn í 1. deild kvenna í kvöld. Að þessu sinni urðu Stúdínur að láta í minni pokann á sínum eigin heimavelli og voru lokatölur 61-77.

 

Leikurinn var jafn til að byrja með og staðan var jöfn 14-14 eftir fyrsta leikhluta, en Keflvíkingar náðu undirtökunum áður en flautað var til hálfleiks og höfðu 7 stiga forskot, 29-36, í leikhléi.

Leikmenn ÍS máttu sín lítils í seinni hálfleik þar sem Keflavíkurvörnin setti í lás og munurinn jókst stöðugt. Keflvíkingar kláruðu leikinn með 16 stiga mun, eins og áður sagði, og er næsta víst að andstæðingar þeirra í úrslitakeppninni eiga ekki von á góðu ef þær halda uppteknum hætti.

 

Erla Þorsteinsdóttir, fyrirliði Keflavíkurstúlkna, sagði sigurinn hafa verið öruggan. „Þetta var jafnt í byrjun, en svo kom vörnin inn í seinni hálfleik og þá kom þetta allt.“

 

Stigahæstar:

 

Keflavík: Anna María Sveinsdóttir 21/12, Birna Valgarðsdóttir 18, Erla Þorsteins 13/12, Marín Karlsdóttir 11.

ÍS: Casie Lowman 26, Hafdís Helgadóttir 11, Alda Leif Jónsdóttir 10.

 

 

VF-mynd/Hilmar Bragi

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn