Bygg
Bygg

Íþróttir

Karfan: Keflavík og Njarðvík sigra auðveldlega
Föstudagur 8. október 2004 kl. 00:33

Karfan: Keflavík og Njarðvík sigra auðveldlega

NJARÐVÍK-KFÍ
Njarðvíkingar lögðu KFÍ á heimavelli sínum í kvöld, 106-85.

Leikur heimamanna var engu að síður lítið fyrir augað og voru þeir heppnir að fá ekki sterkari andstæðinga í heimsókn.

Njarðvíkingar náðu fljótt forystunni í leiknum þar sem Brenton Birmingham fór á kostum og virðist vera kominn í toppstand eftir erfið meiðsli á síðasta ári.
Þeir náðu mest 16 stiga forskoti, 29-13, en Ísfirðingar settu síðustu 7 stigin í fjórðungnum.

Annar leikhluti byrjaði afar dapurlega þar sem hvorki gekk né rak hjá hvorugu liði og liðu nær 3 mínútur þar til fyrsta karfan leit dagsins ljós. Gestirnir sóttu á þar sem Josh Holm fór fyrir þeim með ágætis leik og minnkuðu muninn niður í 4 stig áður en Njarðvíkingar fóru í gang aftur. Þeir gengu á lagið fram að hálfleik og voru komnir með góða forystu, 54-35. þegar þeir héldu inn í klefa.

Ísfirðingar létu ekki bugast þótt munurinn væri mikill og höfðu í fullu tré við heimamenn í seinni hálfleiknum. Holm fór fyrir sínum mönnum sem héngu í hálf andlausum Njarðvíkingum án þess þó að ógna forskotinu.

Þannig gekk leikurinn allt til loka. Fátt gladdi við leik Njarðvíkur nema framganga ungu mannanna Jóhanns Árna Ólafssonar og Kristjáns Sigurðssonar. Jóhann barðist eins og ljón út um allan völl á meðan Kristján hitti úr nokkrum góðum þriggja stiga skotum.

Lokakaflinn var óspennandi þar sem úrslitin voru löngu ráðin. Munurinn var um og yfir 20 stigin og lauk, eins og fyrr sagði 106-85.

„Þetta var með alla daprasta móti hjá okkur,“ sagði Einar Árni Jóhannsson þegar leik var lokið. „Þeir komu hingað tilbúnir til að berjast fyrir sínu en við vorum að gera þetta með hálfum hug á löngum köflum í leiknum.“ Einar sagði Jóhann hafa borið af í leiknum og að Kristján hafi átt góða innkomu en þess utan hafi frammistaðan ekki verið góð.

Tölfræði leiksins

TINDASTÓLL-KEFLAVÍK

Íslandsmeistarar Keflavíkur hófu titilvörnina með frekar auðveldum sigri á liði Tindastóls.

Krókurinn hefur verið með erfiðari heimavöllum landsins en Stólarnir hafa verið í tómum vandræðum í aðdraganda tímabilsins. Þeir voru ekki komnir með nýja Kana og voru auðveld bráð.

Leikurinn spilaðist nokkuð létt fyrir Keflavík í byrjun og leiddu þeir 34-44 í hálfleik án þess að vera að spila mjög vel. Í seinni hálfleik sigldu þeir örugglega framúr og var aldrei vafi um það hvort liðið færi heim með stigin tvö.

Tölfræði leiksins
Bílakjarninn
Bílakjarninn