Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Karen ráðin íþróttastjóri GS
Karen ásamt syni sínum.
Miðvikudagur 14. janúar 2015 kl. 08:36

Karen ráðin íþróttastjóri GS

- uppalin í Leirunni.

Karen Sævarsdóttir hefur verið ráðin sem íþróttastjóri Golfklúbbs Suðurnesja. Karen er vel málum kunn hjá klúbbnum enda uppalin í Leirunni og þekkir vel allt starf GS. Frá þessu er greint á vefsíðu klúbbsins. 
 
Karen er menntuð sem LPGA golfkennari og hefur áður þjálfað hjá GS. Auk þess keppti Karen lengi undir merkjum GS með frábærum árangri. Hún hefur varð t.a.m. átta sinnum í röð Íslandsmeistari í golfi og hefur níu sinnum orðið klúbbmeistari GS.
 
Karen kemur til með að sinna starfi íþróttastjóra samhliða golfkennslu og annarri vinnu. Stjórn GS býst við góðu samstarfi við Karen og hlakkar til komandi golftímabils.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024