Íþróttir

Karen Guðna í kvennalandsliðið í golfi
Karen leikur í fyrsta sinn fyrir Íslands hönd á Smáþjóðaleikunum í sumar.
Föstudagur 22. maí 2015 kl. 11:32

Karen Guðna í kvennalandsliðið í golfi

Suðurnesjamærin Karen Guðnadóttir úr GS var valin í þriggja manna landslið kvenna í golfi sem tekur þátt í Smáþjóðaleikunum en þeir fara fram í 16. sinn í Reykjavík dagana 1.– 6. júní. Leikið verður á Korpúlfsstaðavelli og verður keppt í liða – og einstaklingskeppni.

Smáþjóðaleikarnir voru fyrst haldnir í San Marinó árið 1985 en leikarnir hafa einu sinni áður farið fram á Íslandi – árið 1997. Alls taka 9 þjóðir þátt á Smáþjóðaleikunum en auk Íslands eru það Lúxemborg, Andorra, Malta, Liechtenstein, San Marinó, Kýpur, Mónakó og Svartfjallaland.

Landslið Íslands verða þannig skipuð á Smáþjóðaleikunum:
Karlar: Kristján Þór Einarsson (Golfklúbbur Mosfellsbæjar), Haraldur Franklín Magnús (Golfklúbbur Reykjavíkur), Andri Þór Björnsson (Golfklúbbur Reykjavíkur).

Konur: Guðrún Brá Björgvinsdóttir (Golfklúbburinn Keilir), Sunna Víðisdóttir (Golfklúbbur Reykjavíkur), Karen Guðnadóttir (Golfklúbbur Suðurnesja).

Í golfkeppninni verða eftirtaldar þjóðir með lið; Andorra, Liechtenstein, Lúxemborg, Malta, Mónakó, San Marinó og Ísland. Karlaliðin verða alls sjö en kvennaliðin fjögur.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

„Smáþjóðaleikarnir eru mjög spennandi verkefni fyrir okkar kylfinga. Það verður skemmtilegt fyrir þá að vera hluti af stórum hópi íslenskra afreksíþróttamanna og keppa á leikunum. Þar sem erum að keppa í fyrsta sinn á þessu móti rennum við nokkuð blint í sjóinn hvað varðar styrkleika hinna þjóðanna. Okkar lið verður vel skipað og við stefnum að sjálfsögðu á sigur, ekkert annað kemur til greina,” sagði Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari.

Alls verður keppt í 10 keppnisgreinum á leikunum en golf og áhaldafimleikar eru nýjar greinar. Keppt verður í eftirfarandi greinum: Áhaldafimleikar, blak/strandblak, borðtennis, frjálsar íþróttir, golf, júdó, körfuknattleikur, skotíþróttir, sund og tennis.

Bílakjarninn
Bílakjarninn