HSS
HSS

Íþróttir

Júdódeild UMFN: Frábær árangur á páskamóti JR
Sunnudagur 1. maí 2011 kl. 18:30

Júdódeild UMFN: Frábær árangur á páskamóti JR

Páskamót Júdófélags Reykjavíkur var haldið 30. apríl sl. Um 100 keppendur mættu til leiks. Júdódeild Njarðvíkur mætti galvösk og vann marga góða sigra fyrir utan að glíma mjög skemmtilega. Medalíurnar urðu alls sjö, eitt gull sem Samúel G. Luppi tryggði, þrjú silfur sem þeir Hermann Nökkvi Gunnarsson, Birkir Freyr Guðbjartsson og Ævar Örn Ómarsson tryggðu sér og bronsin unnu Kristján Snær Jónsson, Sóley Þrastardóttir og Helgi Snær Elíasson. Hlutfallið af þeim sem tóku þátt og af þeim sem unnu til verðlauna var því rétt tæplega 60%.



Mynd: Júdókappar úr UMFN.

Bílakjarninn
Bílakjarninn