Jósef aftur til Malmö
Grindvíkingurinn Jósef Kristinn Jósefsson mun að öllum líkindum fara aftur til Malmö í Svíþjóð í næsta mánuði þar sem forráðamenn Malmö FF vilja skoða hann nánar. Þetta kemur fram á Visir.is
Hann fór til félagsins í síðasta mánuði og stóð sig vel. „Mér leist mjög vel á félagið. Það er gríðarlega góð umgjörð í kringum liðið og mér leist mjög vel á allar aðstæður," sagði Jósef á Vísi.
Hann skoraði annað marka Íslands í 2-1 sigri á Norður-Írlandi í fyrrakvöld í heimabæ sínum og hefur verið fastamaður í liði Grindavíkur undanfarin þrjú tímabil.