Jónas verður í hópnum
Fyrirliði Bikarmeistara Keflavíkur, Jónas Guðni Sævarsson, verður í leikmannahópi Keflavíkur í kvöld en hann hefur verið að glíma við nárameiðsli að undanförnu. Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, mun tilkynna byrjunarliðið um 20 mínútum fyrir leik svo ekki er enn komið á hreint hvort Jónas hefji leik í kvöld.
„Það eru ekki miklar líkur á því að ég verði í byrjunarliðinu en það gekk vel hjá mér í gær og ég var aðeins að prófa mig áfram. Ég fann fyrir smá eymslum í náranum þegar ég var að teygja en hvort þetta sé eitthvað alvarlegt kemur síðar í ljós. Lokaákvörðun verður tekin á eftir en ég verð allavega í hópnum og mun undirbúa mig fyrir leikinn eins og alla aðra og taka þátt í því að byggja upp stemmningu í hópnum,“ sagði Jónas í samtali við Víkurfréttir.
Jónas hefur misst út síðustu þrjá leiki með Keflavíkurliðinu sem hefur saknað fyrirliða síns sárt. Baldur Sigurðsson hefur borið fyrirliðabandið í fjarverju Jónasar en þeir tveir virka vel saman á miðjunni og þurfa að eiga stórleik í kvöld gegn sterku liði Midtjylland.
Keflavík-Midtjylland
Keflavíkurvöllur kl. 19:15 í kvöld