Þriðjudagur 4. október 2005 kl. 14:27
Jónas og Hörður inni: Magnús úti
Þeir Jónas Guðni Sævarsson og Hörður Sveinsson voru valdir í U 21 árs landsliðshópinn í knattspyrnu sem leikur gegn Svíum í undankeppni HM í knattspyrnu þann 11. október næstkomandi. Magnús Þormar náði ekki inn í hópinn.
Hrafn Davíðsson, markvörður ÍBV, var valinn í stað Magnúsar.