Jónas Guðni: „Ég er kominn heim“
Jónas Guðni Sævarsson leikur með Keflvíkingum
Jónas Guðni Sævarsson mun leika með Keflvíkingum næsta sumar í 1. deildinni í knattspyrnu. Jónas sem er 32 ára var eftirsóttur af mörgum liðum eftir að hann sagði skilið við KR á dögunum. Hann gerir nú tveggja ára samning við Keflavík. Hann vill ólmur taka þátt í því verkefni að koma Keflvíkingum aftur upp í efstu deild og ljúka ferlinum á heimaslóðum þar sem hann steig sín fyrstu skref í fótboltanum.
„Nonni Ben formaður hringdi í mig og sagði: „Nú þarft þú að koma heim, við þurfum á þér að halda.“ Það kveikti í mér og vakti upp Keflvíkinginn í mér. Svo hringdi pabbi líka í mig og sagði: „Jónas, það vilja allir að þú komir heim.“ Þannig að ég er að koma heim,“ og það er augljóst að hann er alsæll með þá ákvörðun. Undanfarin ár hefur Jónas leikið með KR en þangað fór hann frá Keflavík árið 2008. Hann reyndi fyrir sér í atvinnumennsku í Svíþjóð um tíma en gekk aftur í raðir KR-inga árið 2012.
Jónas sem er að flytja heim til Reykjanesbæjar með fjölskylduna er spenntur fyrir því verkefni sem framundan er. „Ég hóf feril minn í meistaraflokki með Keflavík í 1. deildinni með mörgum af þessum strákum sem eru í liðinu núna. Þetta hljómar skemmtilega og ég vil hjálpa Keflavík að spila aftur í deild þeirra bestu,“ sagði miðjumaðurinn öflugi í samtali við Víkurfréttir.
Fyrir í Keflavík hittir Jónas yngsta bróður sinn Fannar Orra. Jónas hefur talað um það áður að hann vildi endilega spila með Fannari áður en ferlinum líkur. „Hann á töff tíma framundan. Þetta verður erfitt fyrir hann á æfingum því ég mun láta hann finna fyrir því,“ segir Jónas og hlær.
Jónas fékk tilboð frá fjölda liða en á endanum heillaði mest að koma heim til æskufélagsins. Nýlega kom ný stjórn til starfa hjá Keflavík. Hennar fyrsta verk var að ráða Þorvald Örlysson sem þjálfara hjá liðinu. Það má svo teljast ansi sterkt að landa leikmanni eins og Jónasi sem er gríðarlega reynslumikill og leiðtogi hvar sem hann fer. Auk þess sem hann er Keflvíkingur í húð og hár.
Jón G. Benediktsson formaður knattspyrnudeildar sagði að þetta væri hvalreki fyrir Keflvíkinga og að deildin væri himinlifandi yfir því að fá Jónas aftur heima.
Bræðurnir Jónas og Fannar spila saman með Keflvíkingum næsta sumar.