Jón og Guðfinnur unnu Vilhjálmsbikarinn í golfi
Jón Þorkell Jónasson og Guðfinnur S. Jóhannsson úr Golfklúbbi Suðurnesja sigruðu í Vilhjálmsbikarnum sem haldinn var í ellefta skipti á Hólmsvelli í Leiru í gær og urðu þar með Íslandsmeistarar í greensome en fyrirkomulagið er þannig að báðir leikmenn slá upphafshögg en síðan slá leikmenn til skiptis. Veður var mjög gott og verðlaun að vanda glæsileg.
Fjölskylda Vilhjálms Vilhjálmssonar hefur staðið fyrir minningarmótinu um Vilhjálm sem dó ungur að aldri árið 2000. Fimmtíu og tvö lið mættu til keppni og léku golf við frábærar aðstæður í Leirunni sem skartar sínu fegursta. Vert er að minnast á það að næstu helgi fer fram Íslandsmótið í sveitakeppni á Hólmsvelli í Leiru
1.sæti Jón Þorkell Jónasson og Guðfinnur S Jóhannsson GS 45 punktar
2. sæti Guðni Hafsteinsson GR og Þorsteinn Magnússon GKG 41 punktar
3. sæti Pétur Már Pétursson GS og Sigurður Garðarsson GS 41 punktar
4. sæti Garðar K Vilhjálmsson GS og Svanur Vilhjálmsson GS 40 punktar
5. sæti Örvar Þór Sigurðsson GS og Rúnar M Sigurvinsson GS 39 punktar
Nándarverðlaun voru veitt fyrir allar par 3 holurnar:
3. braut Herborg Arnarsdóttir 2.99 m
8. braut Gissur Hans Þórðarsson 1.60 m
13. braut Helgi Runólfsson 4.70 m
16. braut Þröstur Ástþórsson 2.41 m
Verðlaunahafar í Vilhjálmsbikarnum 2012.
Systkini Vilhjálms, Vala Rún, Svanur, Garðar og Margeir með móðurinni, Sigrúnu Ólafsdóttur eftir vel heppnað Vilhjálmsmót 2012.