Jón Ingi á leið á úrtökumót NM í Noregi
Keflvíkingurinn Jón Ingi Ægisson, kylfingur og snókerspilari, er á leið á úrtökumót Norðurlandamótsins í snóker í Noregi. Hann ávann sér rétt ásamt Jóhannesi B Jóhannessyni, Gunnari Hreiðarssyni, Þorra Jenssyni og Atla Má Bjarnasyni og Örvari Guðmundssyni í mótinu sem fram fer í Osló í febrúar á næsta ári. Úrtökumót var spilað og voru 25 þátttakendur í fjórum riðlum. 8 manns komust upp úr riðlum. Þetta kemur fram á síðunni 147.is.