Jón Halldór: Liðsheildin er sigurformúlan
Keflavík tyllti sér í gærkvöldi á topp
,,Það eru lið sem vinna leiki og titla en ekki einstaklingar. Það er klárt að við höfðum sigurinn í gær með liðsheildinni. Sem dæmi má nefna þá spilaði Bryndís Guðmundsdóttir sárlasin í gær en það sýnir eljuna og dugnaðinn í hópnum,” sagði Jón í samtali við Víkurfréttir. ,,Þá eru leikmenn á borð við Hrönn Þorgrímsdóttur að stíga vel upp hjá okkur en hún er dæmi um leikmann sem er farinn að láta meira að sér kveða eftir að hafa spilað lítið fram að þessu.”
,,Við vorum búnar að setja tóninn fyrr á leiktíðinni með því að verða
Sárlasin gerði Bryndís 13 stig í liði Keflavíkur í gær en
Flestir leikmenn Keflavíkur sem nú skipa liðið máttu ávallt sætta sig við 2. sætið í öllum keppnum í fyrra og segir Jón það hafa haft mikil áhrif á bæði liðið og hann. ,,Eftir síðustu leiktíð voru nokkrir farnir að kalla mig John Silver,” sagði Jón og hló en honum var vart hlátur í huga alla síðustu leiktíð þegar silfrið skolaði alltaf á hans strendur.
,,Að vera alltaf svona nærri því að vinna mótiverar mann svo mikið og maður verður ennþá ákveðnari í því að lenda í 1. sæti. Auðvitað situr svona í manni og maður vill vinna alla leiki. Síðasta leiktíð hjálpaði verulega til og skýrir að sumu leyti velgengni okkar í ár,” sagði Jón sem telur sig hafa gengið í gegnum góðan skóla.
,,Ég var á mínu fyrsta ári sem þjálfari í úrvalsdeild kvenna í fyrra og var að læra inn á hvað maður getur gengið langt í þessu. Ég lærði t.d. í fyrra hvernig á að tapa,” sagði Jón en aðspurður hver sigurformúlan væri sem Keflavík færi eftir þessa dagana svaraði hann: ,,Liðsheildin er sigurformúlan.”