Jón Halldór: Ekki í boði að vera þreyttur núna
Keflavík og Haukar mætast í sínum öðrum leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Leikurinn fer fram að Ásvöllum í Hafnarfirði og hefst kl. 19:15. Keflavík leiðir einvígið 1-0 eftir sigur í framlengdum leik í Toyotahöllinni á laugardag.
Rannveig Kristín Randversdóttir snéri sig illa á ökkla í fyrsta leik liðanna en verður hún með í kvöld?
,, Ég veit ekki með Rannveigu. Útlitið var ekki gott í gærkveldi,” sagði Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari Keflvíkinga í samtali við Víkurfréttir. ,,Við skulum sjá til í dag með Rannveigu, hún fer í sjúkraþjálfun í dag og þá fáum við úr skorið með stöðuna á henni.”
Hvernig leggst leikurinn annars í þjálfarann, telur hann að þreyta sér farin að gera vart við sig hjá liðunum?
,,Leikurinn í kvöld leggst vel í mig. Leikurinn á laugardaginn var stórskemmtilegur og hef ég ekki trú á að neitt annað verði uppá teningnum í kvöld. Ég veit ekki með þreytu, það er ekki í boði að vera þreyttur núna. Þetta er sá tími sem að allir leikmenn bíða eftir og menn verða bara þreyttir eftir úrslitakeppnina. Ég tel að liðið hjá mér sé í góðum gír fyrir kvöldið og við hlökkum bara til,” sagði Jón Halldór.
Haukar-Keflavík
Leikur 2, 17. mars 2008
Ásvellir, Hafnarfjörður