HSS
HSS

Íþróttir

Jón Axel verðlaunaður
Mynd: Twittersíða Davidson.
Fimmtudagur 10. maí 2018 kl. 06:00

Jón Axel verðlaunaður

Körfuknattleiksmaðurinn og Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson hlaut á dögunum viðurkenninguna „Breakthrough“ ársins hjá Davidson háskólanum, á íslensku mætti þýða það sem sá leikmaður sem skaust fram á sjónarsviðið á tímabilinu. Karfan.is greinir frá þessu. Jón Axel var að klára sitt annað tímabil með Davidson en hann á mjög gott tímabil að baki, meðaltal hans í 33 leikjum í vetur var 13,2 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn