Miðvikudagur 7. desember 2005 kl. 23:52
Jólasýning FK á laugardag

Jólasýning Fimleikadeildar Keflavíkur verður haldin laugardaginn 10. desember næstkomandi í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Sýningin hefst kl. 15 og er jafnan skemmtileg og viðamikil.
Aðgangseyrir er kr. 1000,- fyrir fullorðna en frítt er fyrir börn 12 ára og yngri. Í lok sýningar verður boðið upp á afmæliskaffi. Húsið verður opnað kl. 14:20 á sýningardegi.