Jólasýning Fimleikadeildar Keflavíkur var glæsileg
Hin árlega jólasýning Fimleikadeildar Keflavíkur fór fram í gær með miklum glæsibrag eins og endranær. Íþróttahúsið við Sunnubraut var þéttsetið þegar unga fimleikfólkið sýndi listir sínar og mikil stemning myndaðist í húsinu. Sýning þessi verður stærri og glæsilegri með hverju árinu og tókst vel til í gær.
Fleiri myndir frá sýningunni má finna á ljósmyndavef Víkurfrétta.