Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Íþróttir

Laugardagur 5. júní 2004 kl. 15:11

Jói á fullu fyrir ÓL

Borðtenniskappinn góðkunni Jóhann Rúnar Kristjánsson stendur í ströngu þessa dagana þar sem hann býr sig undir keppni á Ólympíumóti fatlaðra sem fer fram í september.

Jóhann er nýkominn frá Þýskalandi þar sem hann tók þátt í geysisterku móti í borginni Bielefeld þar sem hann lenti í 5.-8. sæti af 22 keppendum. Meðal keppenda voru margir sem hann mun mæta á Ólympíumótinu og lagði Jóhann tvo þeirra að velli að þessu sinni.

Jóhann keppti einnig á móti í Dublin í apríl þar sem hann lenti í 4. sæti, en í næstu viku er för hans heitið til Köln þar sem hann tekur þátt í enn öflugra móti en þeim sem hann hefur þegar keppt á. Þar munu allir sterkustu spilararnir í hans flokki koma saman og verður það síðasta mótið sem Jóhann tekur þátt í fyrir ÓL, en eftir það verður hann í stífum æfingum allt fram að mótinu.

Víkurfréttir munu fylgjast með framvindunni hjá Jóhanni og færa fréttir af gengi hans.
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25