Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Johansson: Góð laun í boði á Íslandi
Fimmtudagur 29. nóvember 2007 kl. 12:30

Johansson: Góð laun í boði á Íslandi

Sænski knattspyrnumaðurinn Tobias Johansson segist í samtali við sænska fjölmiðla vera með samningstilboð frá Keflavík. Frá þessu er greint á www.visir.is í dag.

 

Hann kom aftur til Svíþjóðar á laugardaginn eftir að hafa æft með Keflavík í eina og hálfa viku. Samningstilboðið hafi hljóðað upp á tvö ár.

 

Johannsson sagði að sér hefði gengið mjög vel á æfingunum og að Keflavík hafi gert honum samningstilboð. Honum var vel tekið og leist vel á félagið.

 

Hann sagði einnig að launin sem væru í boði væru mjög góð. „Það er of erfitt að hafna tækifæri til að gerast atvinnumaður í knattspyrnu, fá að spila í efstu deild í viðkomandi landi og fá í þokkabót góð laun fyrir. Þetta lítur út fyrir að vera afar spennandi," sagði Johansson.

 

Hann getur bæði spilað sem framherji og sem hægri kantmaður.

 

Á þriðjudaginn var samið við annan sænskan knattspyrnumann, Patrik Ted Redo sem lék með Fram síðastliðið sumar.

 

Frétt af www.visir.is

 

VF-Mynd/ [email protected] Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur er að styrkja leikmannahópinn þessa dagana.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024