Íþróttir

Jóhanna Júlía fer á Evrópumeistaramót unglinga í sundi
Mánudagur 2. júlí 2012 kl. 08:56

Jóhanna Júlía fer á Evrópumeistaramót unglinga í sundi

Fjórir sundmenn sem allir eru búnir að vera í æfingabúðum í Bath á Englandi eru nú á leið til Antwerpen í Belgíu þar sem þeir taka þátt í Evrópumeistaramóti unglinga.

Mótið hefst miðvikudaginn 4. júlí og stendur til sunnudagsins 8. júlí.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Sundmennirnir eru Kolbeinn Hrafnkelsson úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, Jóhanna Júlía Júlíusdóttir úr ÍRB, Rebekka Jaferian og Paulina Lazorikova sem báðar koma úr Sundfélaginu Ægi.

Kolbeinn mun taka þátt í 50,100, og 200 metra baksundi. Jóhanna Júlía og Paulina keppa í 200 metra flugsundi og Rebekka mun synda 800 metra skriðsund. Sundmennirnir hefja öll keppni á miðvikudaginn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn