Jóhann Rúnar íþróttamaður ársins í Reykjanesbæ
Jóhann Rúnar Kristjánsson, borðtennismaður, sem leikur fyrir Nes í Reykjanesbæ, er íþróttamaður Reykjanesbæjar 2010. Kjörinu var lýst rétt í þessu í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur. Jóhann Rúnar hlaut mikið lófatak þegar úrslitin voru gerð opinber.
Auk Jóhanns voru bestu íþróttamenn í fimmtán íþróttagreinum í Reykjanesbæ verðlaunaðir, auk þess sem allir Íslandsmeistarar í Reykjanesbæ á árinu 2010 fengu verðlaunapening.
Jóhann var margfaldur Íslandsmeistari á árinu.
Í tvíliðalek karla  Ísl. mót ÍF.
Sitjandi flokkur karla Ísl. mót ÍF.
Opinn flokkur karla Ísl. mót ÍF.
Í 1. Flokki karla ófatlaðra.
Nánari frétt um íþróttamann ársins á eftir...
Myndin: Jóhann Rúnar Kristjánsson með verðlaunagripina við útnefninguna nú áðan. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson


 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				