Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Jóhann Rúnar á HM í borðtennis
Þriðjudagur 16. mars 2010 kl. 12:54

Jóhann Rúnar á HM í borðtennis

Jóhann Rúnar Kristjánsson mun taka þátt í heimsmeistaramótinu í borðtennis fatlaðra, sem fram fer í Suður-Kóreu í lok október á þessu ári. Honum barst tilkynning í morgun þess efnis að hann væri 15. maður inn á heimsmeistaramótið og því öruggur inn. Framundan eru því æfingabúðir og stíft þjálfunarprógramm fyrir mótið.


Jóhann Rúnar fór með sigur af hólmi í minningarmóti sem haldið var um síðustu helgi og um komandi helgi er það svo Íslandsmót fatlaðra í borðtennis. Skemmst er að minnast þess að Jóhann Rúnar varði Íslandsmeistaratitil sinn í 1. flokki ófatlaðra um þarsíðustu helgi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024