HSS
HSS

Íþróttir

Miðvikudagur 23. febrúar 2005 kl. 21:59

Jóhann Ólafsson í þriggja leikja bann

Jóhann Árni Ólafsson, leikmaður Njarðvíkurliðsins í körfuknattleik, var í dag úrskurðaður í þriggja leikja bann í öllum flokkum eftir að hafa hent bolta í andlit Rögnvalds Hreiðarssonar dómara. Atvikið átti sér stað þann 18. febrúar síðastliðinn í drengjaflokksleik þar sem KR og Njarðvík mættust.

 

Fram fór munnlegur málflutningur þar sem dómarar leiksins, Rögnvaldur Hreiðarsson og Erlingur Snær Erlingsson gáfu skýrslu um atvikið. Jóhann gerði einnig grein fyrir málinu út frá sínu sjónarhorni en frá þessu er greint á vef Körfuknattleikssambands Íslands.

Bílakjarninn
Bílakjarninn