Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Jóhann kominn heim frá Englandi
Mánudagur 19. september 2011 kl. 15:47

Jóhann kominn heim frá Englandi

Borðtenniskappinn Jóhann Rúnar Kristjánsson er kominn heim frá opna breska meistaramótinu í borðtennis sem fram fór um helgina. Jóhann og liðsfélagar hans komust ekki upp úr sínum riðlum í einstaklingskeppninni og ekki heldur í liðakeppninni.

Í liðakeppninni lék Jóhann með Martin Ludrovsky frá Slóvakíu. Þeir töpuðu naumlega tveimur fyrstu leikjunum sínum 2-3 en unnu síðasta leikinn 3-1 og höfnuðu í 3. sæti af fjórum liðum í riðlinum.

Árangurinn um helgina dugir því ekki fyrir Jóhann til að komast inn á Ólympíumót fatlaðra í London á næsta ári en einhver stig söfnuðust þó í ferðinni. Þau stig duga ekki til að koma Jóhanni upp í 16. sætið sem gefur síðasta örugga plássið í London svo leitin að sæti á Ólympíumótinu heldur áfram hjá Jóhanni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024